Vöruvigtun MS í samræmi við reglur
Frétt frá Mjólkursamsölunni ehf
1. mars 2012
Öll vöruvigtun MS í samræmi við reglur
Allar framleiðsluvörur Mjólkursamsölunnar sæta lögbundnu daglegu vigtaeftirliti og öll vörupökkun félagsins er framkvæmd í samræmi við opinberar reglur með löggiltum vogum.
Í reglubundinni daglegri vigtarúttekt sem félagið gerði í morgun voru allar vegnar vörur innan þeirra marka um leyfileg frávik sem reglur kveða á um. Reglugerðin sem um ræðir er númer 503 frá árinu 2005 um merkingu matvæla.
Reglugerðin kveður á um að frávik í hverju tilviki megi ekki vera meira en 2% í vörum sem eru meira en 500gr og 5% í vörum sem eru léttari en 500 gr. Í mælingum MS í dag voru allar vörurnar innan þeirra marka sem sett eru í reglugerðinni og það er í samræmi við vinnureglur félagsins.
Mjólkursamsalan mun setja sig í samband við Neytendastofu til að láta sannreyna það sem kom fram við mælingar fyrirtækisins í morgun.
Mjólkursamsalan ehf
Nánari upplýsingar veitir Einar Sigurðsson forstjóri, s. 858 2202- 569 2202
Athugið að vöruafgreiðsla MS er lokuð alla virka daga milli kl. 12 og 13.