Óðals-Havarti pipar
Nú er kominn nýr ostur í hópinn, Óðals-Havarti með pipar. Hann er góður á t.d. hamborgara, rúnstykkið eða bara til að fá krydd í samlokuna!
Salan á Óðalsostunum hefur gengið framar vonum frá því að þeir komu á markað í núverandi mynd haustið 2011. Á þessum árum hefur selt magn tvöfaldast! Markmiðið var að auðkenna betur sérostana og setja þá alla undir eitt vörumerki. Osturinn er í hæsta gæðaflokki. Umbúðirnar vekja athygli og aðgreina sig vel frá brauðostum og þær endurspegla það andrúmsloft sem við viljum tengja við ostinn: - Úr fórum meistarans
Athugið að tímabundið er vöruafgreiðsla MS lokuð alla virka daga milli kl. 12 og 13.