Nýjung - konudags ostakaka frá MS
Ástarkaka frá MS í tilefni af konudeginum
Á konudaginn er tilvalið að gefa eftirlætinu sínu konudags ástarköku og dekra við hana. Í tilefni konudagsins 20.febrúar næstkomandi býður MS nú upp á ljúffenga konudags ostaköku með jarðaberjum sem fáanleg er í öllum helstu verslunum. Ostakökurnar frá MS hafa notið mikilla vinsælda í gegnum árin ásamt því að árstíðarvörurnar okkar hafa hlotið góðar viðtökur meðal neytenda og fannst okkur því vel við hæfi að bjóða upp á sérstaka ostaköku í tilefni konudagsins segir Guðný Steinsdóttir markaðsstjóri hjá MS sem hvetur karlpeninginn til að næla sér í eintak í næstu verslun.

Athugið að vöruafgreiðsla MS er lokuð alla virka daga milli kl. 12 og 13.