Nemendur í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ fögnuðu skólamjólkurdeginum
Nemendur í Lágafellskóla í Mosfellsbæ fögnuðu Alþjóðlega skólamjólkurdeginum !
Í gær var Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn haldinn í þrettánda sinn víða um heim og í tilefni dagsins buðu íslenskir kúabændur og MS öllum 70.000 leikskóla-og grunnskólabörnum landsins upp á mjólk í skólunum. Reiknað er með að drukknir hafi verið alls sextán þúsund lítrar af mjólk og er Lágafellsskóli í Mosfellsbæ einn þeirra skóla sem fagnaði alþjóðlega skólamjólkurdeginum með þessum hætti. Nálægt 700 nemendur á aldrinum fimm til fimmtán ára sækja Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. Að sögn Rúnars Kristinssonar matreiðslumeistara er þess gætt að bjóða fjölbreyttan og næringarríkan mat í samræmi við ráðleggingar frá Lýðheilsustöð og eru börnin yfirhöfuð ánægð með hann.
Nánar um skólamjólkurdaginn:
Í gær var vakin athygli barna, foreldra og starfsfólks skólanna á mikilvægi mjólkur í fæði barnanna. Á Skólamjólkurdaginn er einnig árlegri teiknisamkeppni hleypt af stokkunum þar sem öllum nemendum 4. bekkjar er boðið að taka þátt í samkeppninni. Myndefnið er algjörlega frjálst en æskilegt er að það tengist hollustu mjólkurinnar fyrir ungt fólk. Mjólk er mjög próteinrík og auk þess mikilvæg uppspretta 14 lífsnauðsynlegra vítamína og steinefna í fæðunni. Sérstaða mjólkur felst meðal annars í því hve góður kalkgjafi hún er en kalk er mjög mikilvægt fyrir byggingu beina, ekki síst á uppvaxtarárum.
Þessar myndir voru teknar rétt fyrir hádegi í dag af hressum krökkum í Lágafellsskóla sem fengu skyr og renndu matnum niður með ískaldri mjólk.
Athugið að vöruafgreiðsla MS er lokuð alla virka daga milli kl. 12 og 13.