MS tekur á móti syngjandi börnum á öskudaginn
Starfsfólk Mjólkursamsölunnar tekur vel á móti syngjandi krökkum á öskudaginn, 1. mars, og eru börnin velkomin frá kl. 8 til 16 á starfsstöðvum fyrirtæksins í Reykjavík, Búðardal, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Starfsmenn fyrirtækisins standa vaktina og hlakka mikið til að hlusta á skemmtileg lög og sjá margvíslega búninga sem krakkarnir klæðast en í gegnum tíðina hefur okkur þótt ótrúlegt að sjá hvað hugmyndaflugið er mikið og greinilegt að margir leggja mikinn metnað í daginn.
Sjáumst á öskudaginn, krakkar!
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá síðasta öskudegi.
450-1111.
mán-fim 8-16 og fös 8-15.
sala@ms.is
Athugið að vöruafgreiðsla MS er lokuð alla virka daga milli kl. 12 og 13.