MS styrkir hlaupara í Reykjavíkurmaraþoninu
Þann 20. ágúst fer Reykjavíkurmaraþonið fram í 33. sinn og að þessu sinni ætlar Mjólkursamsalan að leggja sitt af mörkum og taka þátt í áheitasöfnuninni með starfsmönnum fyrirtækisins sem taka þátt í hlaupinu. Hver starfsmaður sem hleypur fær 20.000 kr. áheit til handa sínu góðgerðarfélagi og er það óháð vegalengd sem hlaupin er.
Tæplega 170 góðgerðafélög taka þátt í áheitasöfnuninni og eru málefnin sem hægt er að hlaupa fyrir fjölmörg en meðal þeirra félaga sem starfsmenn MS hafa valið að hlaupa fyrir eru Baraspítali Hringsins, Einstök börn, Gleym-mér-ei styrktarfélag, Hjartavernd og Umhyggja styrktarsjóður langveikra barna.
MS sendir hlaupurum hvatningaróskir og bestu kveðjur.
Athugið að tímabundið er vöruafgreiðsla MS lokuð alla virka daga milli kl. 12 og 13.