Mjólkurfræðingur í Búðardal
Mjólkursamsalan leitar að mjólkurfræðingi til þess að bætast í samhentan hóp starfsfólks í Búðardal. Starf mjólkurfræðings snýst um að stýra framleiðslu og vinnslu mjólkur. Hluti vinnutíma fer í það að vakta framleiðslubúnað með það að markmiði að hámarka nýtingu og gæði hráefnis.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Vinnsla mjólkur til framleiðslu mjólkurvara
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann
Hæfniskröfur:
- Sveinsbréf í mjólkuriðn
- Jákvæðni, metnaður og góð samskiptahæfni
- Sjálfstæði í starfi og geta til að vinna undir álagi
Nánari upplýsingar
Vinnsla mjólkur í Búðardal er að starfsstöð okkar á Brekkuhvammi 15. Í Búðardal búa 300 manns. Með náttúruna allt í kring býður staðsetningin upp á mikla möguleika fyrir útivistar- og hestaáhugafólk.
Nánari upplýsingar um starfið má finna hér
Athugið að vöruafgreiðsla MS er lokuð alla virka daga milli kl. 12 og 13.