Matur og miðlar - ímynd íslenskra matvæla á netinu
Þriðjudaginn 23. maí var haldinn opinn fundur á vegum Íslandsstofu undir yfirskriftinni Matur og miðlar. Vefsíður og samfélagsmiðlar gegna sífellt stærra hlutverki í upplýsingaleit neytenda og gildir það einnig um mat og matarmenningu. Mikilvægt er fyrir Ísland að nýta sér þá þróun og auka vitund um og áhuga á íslensku hráefni og þar hefur MS svo sannarlega staðið sig vel með útflutningi og kynningu á íslenska skyrinu eins og mýmörg dæmi hafa sýnt. Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri MS, var meðal þeirra sem tóku til máls á fundinum og fjallaði erindi hennar um íslenska skyrið og sýnileika þess á netinu. Þá kynnti Ben Hollom, framkvæmdastjóri breska fyrirtækisins M2 Bespoke, greiningu á sýnileika íslenskra matvæla og hvernig íslensk fyrirtæki geta nýtt samfélagsmiðla, áhrifavalda og efnismarkaðssetningu fyrir íslenska matvælageirann.
Þeir sem vilja kynna sér málið frekar er bent á frétt Íslandsstofu um fundinn: Engar skáldsögur af íslenskum mat
Á myndinni hér að ofan má sjá, tvo fyrirlesara fundarins, Guðnýju Káradóttur og Guðnýju Steinsdóttur. Mynd/ Í?slandsstofa
450-1111.
mán-fim 8-16 og fös 8-15.
sala@ms.is
Athugið að vöruafgreiðsla MS er lokuð alla virka daga milli kl. 12 og 13.