Lokað á 17.júni
Góðan dag,
Lokað er hjá Mjólkursamsölunni föstudaginn 17. júní, eingöngu er vörudreifing á nokkur afmörkuð landsvæði, eins og Fjallabyggð, Fjarðarbyggð, Vestfirði, Snæfellsnes, Húnavatnssýslur, Skaftafellssýslur, Rangárvallasýslu og Ströndina í Árborg (Stokkseyri, Eyrarbakki, Þorlákshöfn). Þessir aðilar þurfa að panta fyrir hádegi daginn áður.
Vegna lokunar á föstudaginn þurfa allar pantanir fyrir vörudreifingu á laugardag og mánudag að berast fyrir hádegi á fimmtudag. Viðskiptavinir á Ísafirði þurfa að panta fyrir kl 10 á fimmtudag.
Athugið að tímabundið er vöruafgreiðsla MS lokuð alla virka daga milli kl. 12 og 13.