Leiðrétting -ÁRÍÐANDI tilkynning frá Mjólkursamsölunni - INNKÖLLUN
4. mars 2016
LEIÐRÉTTING -ÁRÍÐANDI tilkynning frá Mjólkursamsölunni - INNKÖLLUN
Ein framleiðsludagsetning misritaðist í fréttatilkynningu um innköllun á Smjörva sem send var út í gær. Hún er:
Vöruheiti: Smjörvi
Heildarupplýsingar í stimplum: BF. 07 MAÍ 2016 007 M.KS A013
Leiðrétt fréttatilkynning:
Mjólkursamsalan tekur úr sölu og innkallar tilteknar framleiðslulotur af Smjörva í 400 gr. umbúðum. Smjörvinn sem um ræðir var framleiddur af Mjólkursamlagi KS.
Ástæða innköllunarinnar er sú að plastbrot úr vinnsluvél fannst í smjörvadós. Plastbrot af þessu tagi geta verið beitt og þar af leiðandi reynst skaðleg.Talið er mögulegt að tilvikin geti verið fleiri og því hefur verið ákveðið að innkalla Smjörva í 400 gr. umbúðum framleiddann af KS með neðangreindum framleiðsludagsetningum.
Upplýsingar um vöruna:
Vöruheiti: Smjörvi
Heildarupplýsingar í stimplum: BF. 04 MAÍ 2016 004 M.KS A013
BF. 07.MAÍ 2016 007 M.KS A013
BF. 11 MAÍ 2016 011 M.KS A013
BF. 14 MAÍ 2016 014 M.KS A013
Nettóþyngd: 400 g
Framleiðandi: Mjólkursamlag KS
Strikamerki: 5690516025007
Vöruheiti: Smjörvi Tilboð
Heildarupplýsingar í stimplum: BF. 01 JÚN 2016 032 M.KS A013
BF. 04 JÚN 2016 035 M.KS A013
BF. 08 JÚN 2016 039 M.KS A013
Nettóþyngd: 400 g
Framleiðandi: Mjólkursamlag KS
Strikamerki: 5690516025205
Þessar upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við. Neytendur sem keypt hafa Smjörva með framangreindum dagsetningum mega skila honum þangað sem hann var keyptur.
Mjólkursamsalan biður neytendur velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.
Nánari upplýsingar fást hjá Gæðasviði Mjólkursamsölunar í síma 450 1100.
Athugið að tímabundið er vöruafgreiðsla MS lokuð alla virka daga milli kl. 12 og 13.