Beint í efni
En
Klassísk íslensk hönnun á mjólkurfernum á markað tímabundið

Klassísk íslensk hönnun á mjólkurfernum á markað tímabundið

Í tilefni af HönnunarMars dagana 4.-8. maí mun Mjólkursamsalan endurvekja klassíska íslenska hönnun á mjólkurfernum. Blómafernurnar (nýmjólk og léttmjólk) verða á markaði í um mánuð en pökkun hefst á sumardaginn fyrsta. Blómafernurnar komu upphaflega á markað árið 1985 og vildi fyrirtækið gefa neytendum blóm í tilefni af 50 ára afmæli fyrirtækisins. Nokkrir íslenskir hönnuðir veg og vanda að hönnuninni. Það voru þau Kristín Þorkelsdóttir, Tryggvi T. Tryggvason og Stephen Fairbairn. Blómin eru byggð á myndefni eftir Eggert Pétursson úr Íslenskri flóru með litmyndum.