Jólavörur MS 2011
Sala á vinsælu jólavörunum frá MS er hafin og verður fáanleg í verslunum á næstu dögum. Jólavörurnar hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hjá mörgum neytendum eru þessar jólavörur orðnar fastur liður í aðdraganda jóla sem lífga upp á skammdegið og gleðja börn og fullorðna.
Þær vörur sem um ræðir eru: jólajógúrt, jóla-Engjaþykkni, jóla-Smámál, jóla-KEA skyr, Hátíðarjógúrt, Hátíðarostur, Jólaosturinn 2011, jóla-brie, jóla-gráðaostur , jóla-yrja, jóla-ostakaka og jólasmjör.
Um miðjan nóvember bætist svo jólamjólkin á markað og er margt spenanndi að finna á vefnum www.jolamjolk.is í tilefni af jólunum, Frá 1.-24.desember verður þar að finna skemmtilegt dagatal með spurningaleik og eru glæsileg verðlaun í boði. Ennfremur er þar að finna litabók fyrir yngstu börnin, spennandi uppskriftir, rafræn jólakort og fróðleikur um jólasveinana.
Athugið að tímabundið er vöruafgreiðsla MS lokuð alla virka daga milli kl. 12 og 13.