Ísey skyr fær verðlaun sem besta mjólkurvaran
Í Herning, Danmörku safnaðist saman á dögunum fólk úr matvælaiðnaðinum víða að úr heiminum og keppti með vörur sínar á International Food Contest. Hlaut Ísey skyr aðalverðlaunin í skyrflokki í ár. Skyrið, sem er með lagi af ferskju í botninum, er þróað af vöruþróunarteymi Mjólkursamsölunnar og framleitt fyrir MS á Finnlandsmarkað af danska fyrirtækinu Thise, Mejeriet Dybbækdal. Skyrið er með séríslenskum skyrkúltúrum. Sagði dómnefndin að skyrið hefði „Just hit the spot.“. (Judge Notes : Great texture. Balance between fruit and acid in the shells. Just hit the spot).
Mjólkursamsalan fékk einnig heiðursverðlaun fyrir súkkulaðimjólk í flokki mjólkur og kakódrykkja auk fjórtán annara verðlauna fyrir góðar mjólkurvörur.
Heildarlisti yfir verðlaun Mjólkursamsölunnar á matvælasýningunni er þessi:
Heiðursverðlaun í flokki mjólkur og kakódrykkja – Súkkulaðimjólk 500ml frá Mjólkursamsölunni
Gull- Ísey Skyr Vanilla 170 gr
Gull- Ísey Skyr bökuð epli 170 gr
Silfur- Ísey skyr Naturel 1000 gr
Silfur- Ísey Skyr creme brulee 500 gr
Silfur- Ísey próteindr. suðrænir ávextir 300 ml
Silfur- Grísk jógúrt Naturel 1000 gr
Silfur- Óska Jógúrt með melónukokteil 180 gr
Silfur- Óska Jógúrt með kaffibragði 180 gr
Silfur- LGG jarðaberja 65 ml
Silfur- Hleðsla Íþróttadrykkur súkkulaðibragð 330 ml
Brons- Laktósa frí mjólk 1,5% fita 1000 ml
Brons- Laktósa frí Súrmjólk 1000 ml
Brons- Ísey Skyr bláber 170 gr
Brons- Drykkjarjógúrt með Jarðaberjum 300 ml
Hægt er að lesa nánar um verðlaunin hérna: https://foodcontest.dk
Björn Baldursson gæðastjóri hjá MS tók við heiðursverðlaununum fyrir súkkulaðimjólk fyrir hönd MS (mynd: International Food Contest)
450-1111.
mán-fim 8-16 og fös 8-15.
sala@ms.is
Athugið að vöruafgreiðsla MS er lokuð alla virka daga milli kl. 12 og 13.