Ísey skyr á Food and fun 2019
Ísey skyr frá MS er stoltur styrktaraðili matarhátíðarinnar Food & Fun Festival sem fram fer í Reykjavík dagana 27. feb.-3. mars. Kokkar hvaðanæva að úr heiminum heimsækja íslenska veitingastaði og galdra fram stórkostlega rétti fyrir gesti hátíðarinnar en þar er íslenskt hráefni á borð við Ísey skyr að sjálfsögðu í aðalhlutverki.
Kynnið ykkur dagskrána á foodandfun.is og takið þátt í hátíðinni á samfélagsmiðlum með því að nota myllumerkið #foodandfunreykjavik
Athugið að tímabundið er vöruafgreiðsla MS lokuð alla virka daga milli kl. 12 og 13.