Grillaðir Dalaostar gleðja bragðlaukana
Sumarið er svo sannarlega komið og þá gleðjast ekki bara blessuð börnin heldur grillarar landsins sömuleiðis. Dalaostarnir góðu eru sívinsælir á veisluborðum landsmanna en það vita það kannski ekki allir að þeir passa líka fullkomlega á grillið.
Ef planið er að grilla á næstu dögum mælum við með að þið kippið með einni Sumarþrennu í næstu verslun og prófið að setja nokkrar sneiðar af uppáhalds Dalaostinum á borgarann!
Til að koma ykkur í grillgírinn er hér hugmynd að samsetningu sem er í miklu uppáhaldi hjá okkur!
• Kjöt og brauð ásamt góðu steikarkryddi
• Óðals Maribo eða Cheddar og ýmist Dala Kastali, Höfðingi eða Camembert ofan á, 2-3 góðar sneiðar
• Stökkt beikon
• Hvítlauksristaðir sveppir
• Svissaður laukur
• Spínat
• Hamborgarasósa
• Kartöflubátar með
Gleðilegt grillsumar!
Athugið að tímabundið er vöruafgreiðsla MS lokuð alla virka daga milli kl. 12 og 13.