Erlend starfsemi MS í dótturfélag
Mjólkursamsalan hefur stofnað nýtt dótturfélag, Ísey útflutning ehf., en allur útflutningur fyrirtækisins heyrir undir hið nýstofnaða félag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá MS.
Enskt heiti félagsins er Ísey Export ltd., en breytingarnar eru í fréttatilkynningunni sagðar liður í því að setja meiri „kraft og fókus“ á vörumerkið Ísey skyr á erlendum mörkuðum.
Skyrið er nú fáanlegt í fimmtán löndum og umsvifin í skyrsölu til útlanda sífellt að aukast. Ísey útflutningur ehf. sér einnig um allan annan útflutning á vörum sem MS selur á erlenda markaði.
Þeir starfsmenn sem áður unnu á útflutningssviði MS munu flytjast með yfir í dótturfyrirtækið og hafa þessar breytingar engin áhrif á daglega starfsemi.
Jón Axel Pétursson lætur af störfum sem framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs MS sem hann hefur sinnt frá árinu 2007 og tekur við starfi framkvæmdastjóra hjá Ísey útflutningi ehf. Þá mun Erna Erlendsdóttir, sem sinnt hefur starfi útflutningsstjóra MS, taka við sem sölu- og markaðsstjóri hjá nýja félaginu.
„Það eru mörg sóknartækifæri framundan fyrir Ísey skyr og töldum við skynsamlegt að halda utan um þessi tækifæri og efla starfið í sérstöku félagi sem einbeitir sér að þessum verkefnum. Með þessu getum við jafnframt sinnt þjónustu við viðskipavini okkar enn betur og einfaldað verkferla til mikilla muna,“ er haft eftir Jóni Axeli Péturssyni framkvæmdastjóra Ísey útflutnings í fréttatilkynningu.
Ísey skyr er nú selt á Norðurlöndunum, í Færeyjum, Bretlandi, Írlandi, Möltu, Sviss, Rússlandi, Hollandi, Lúxemborg, Belgíu og Ítalíu. Í byrjun næsta árs munu svo fleiri lönd bætast í hópinn þegar sala á Ísey skyri hefst í Ástralíu, Nýja Sjálandi og Japan.
Athugið að tímabundið er vöruafgreiðsla MS lokuð alla virka daga milli kl. 12 og 13.