Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Súpur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Súpur > Sjávarréttasúpa

Sjávarréttasúpa

Matreiðsluleiðbeiningar

Setjið lauk, lárviðarlauf, salt, piparkorn og edik saman við vatnið. Sjóðið fiskinn ( ýsu eða lúðu) í vatninu. Takið fiskinn upp. Soð-og beinhreinsið. Kælið. Sigtið soðið í stóran pott. Bætið smjöri og safa af kræklingi út í. Bætið hvítvíni og rjómaosti í, látið ostinn bráðna. Smakkið til með salti og pipar. Takið fiskinn í bita og bætið út í soðið, ásamt kræklingi, sundurskornum fiskbollum, rækjum og skelfiski. Hitið að suðu. Smakkið súpuna til þegar hún hefur staðið smástund. Gott er að bæta meira hvítvíni í súpuna. Gott er að búa súpuna til daginn áður en hún er notuð, og hita síðan upp Gott er að bæta humri út í súpuna. Hægt er að frysta súpuna, láta hana þiðna og hita hana upp. Bætið meiri rjómaosti í ef súpan á að vera þykkari. Berið sama hvítvín með súpunni og er í henni.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Sjávarréttasúpa

550 g ýsa heil
750 ml vatn ml
0,5 stk laukur
3 stk negulnaglar stungnir í laukinn
3 stk lárviðarlauf
1 msk salt
5 stk piparkorn
2 msk hvítvíns edik
50 g smjör
110 g rjómaostur með hvítlauk og dilli
1 tsk salt
0,5 tsk pipar
1 msk dill klippt
1 msk steinselja söxuð
2 dl hvítvín ekki sætt dl
1 dós kræklingur ¼
1 dós fiskbollur ¼
100 g rækjur
100 g skelfiskur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð