Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Súpur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Súpur > Humarsúpa með steiktum humri, laxi og þorsk

Humarsúpa með steiktum humri, laxi og þorsk

 

Humarsúpan er borin fram með smjörsteiktu spínati og létt þeyttum rjóma.

Uppskriftin er frá Gunnari Karli yfirkokki á veitingastaðnum Vox.

Matreiðsluleiðbeiningar

 

Humarsoð-aðferð
Skeljarnar eru léttbrúnaðar í ólifuolíunni ásamt öllu kryddi og síðan klárað með tómatpurrré og worchester.
Vatnið hellt útí og suðan látin koma upp og sjóðið í ca. 2 tíma og svo sigtað.

Súpan er löguð á eftirfarandi hátt
Byrjið á að sjóða soðið niður uns vel kraftmikið.

Bætið þá hvítvíninu út í og sjóðið við vægan hita í ca 5 mín.

Rjómanum er þá hellt út í og látið krauma við vægan hita. Þykkt og bragðbætt ef þess þarf. Fjórar matskeiðar af þeyttum rjóma eru settar í súpuskálina eða út í súpuna rétt áður en að henni er hellt í súpuskálarnar.

Steikið fiskinn uns fallega gylltur og komið fallega fyrir á diskunum.

Hellið súpunni í diskana og skreytið með jurtum.

 

 



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Humarsoð

1 kg humarklær eða skeljar
4 msk ólifu olía
4 stk hvítlauksrif "söxuð"
1 stk lárviðarlauf
1 tsk karrý
1 tsk sjávarsalt
3 msk tómatpurrée
2 msk worchester
2 lítrar vatn
0 smá safranþræðir
 

Súpan

6 dl humarsoð
2 dl hvítvín
1 dl rjómi
1 msk koníak
4 msk þeyttur rjómi
1 flottur skelfiskur og, eða fiskur að eigin vali
1 poki spínat
1 jurtir til skrauts

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð