Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Sumarlegar uppskriftir > Safarík kúreka-T-bone-steik með Béarnaise-smjöri og grilluðum kartöflubátum

Safarík kúreka-T-bone-steik með Béarnaise-smjöri og grilluðum kartöflubátum

Fyrir 4.

Matreiðsluleiðbeiningar

Aðferð:
Byrjið á því að búa til Béarnaise-smjörið (sjá uppskrift undir kryddsmjör). Hitið grillið vel. Nuddið ólífuolíu á kjöt-sneiðarnar og saltið örlítið. Grillið kjötið í 2 mín. á hvorri hlið við beinan háan hita. Lækkið hitann í grillinu og steikið áfram í 3-4 mín. á hvorri hlið en þá ætti kjötið að vera orðið „medium-rare“. Steikið áfram smástund ef þið viljið hafa það meira steikt. Takið svo kjötið af grillinu og látið það standa á heitum diski í 5-10 mín. til þess að jafna sig. Rétt áður en kjötið er borið fram er gott að skella því aftur á heitt grillið í 1-2 mín. Setjið steikurnar á diska og leggið vænan bita af kryddsmjöri ofan á hverja þeirra. Tilvalið er að bera steikurnar fram með kartöflubátum (undir salöt og meðlæti), fylltum kúrbít og eða fylltum papriku (sjá undir salöt og meðlæti).



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

T-bone steik

4 stk. 350-400 g T-bone-steikur
0 ólífuolía
0 salt og pipar

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð