Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Sumarlegar uppskriftir > Kardimommu krydd-hrísgrjón

Kardimommu krydd-hrísgrjón

Handa 4.

Matreiðsluleiðbeiningar

Aðferð:
Setjið hrísgrjónin í sigti og skolið með köldu vatni. Látið vatnið renna af þeim. Bræðið smjör í þykkbotna potti og ristið kryddið í smjörinu. Bætið grjónunum út í og þekið þau vel með smjörinu. Hellið 275 ml af köldu vatni yfir, setjið lokið þétt yfir pottinn, hitið að suðu við meðalhita og látið malla í 10 mín. Ef lokið er ekki þétt er hægt að þétta það með því að leggja álpappír utan um pottbrúnina. Takið pottinn af hitanum og látið grjónin standa áfram í lokuðum pottinum í 5 mínútur. Hrærið upp í grjónunum með gaffli. Setjið fetaostinn út í og klippið ferskt kóríander yfir. Berið strax fram.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Krydd hrísgrjón

200 g basmati-hrísgrjón
2 msk. smjör frá MS
0 svolítið salt
1 kanilstöng
6 heilir negulnaglar
8 stk. kardimommubelgir, létt kramdir eða annað indverskt krydd
0,5 tsk. anísfræ eða 1 tsk. fennelfræ
1 krukka Dalafeta frá MS að eigin vali
0 fersk kóríanderlauf

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð