Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Sumarlegar uppskriftir > Gómsæt og mjúk naan-brauð

Gómsæt og mjúk naan-brauð

Meðlæti handa 4-6

Matreiðsluleiðbeiningar

Aðferð:
Setjið ger og sykur saman í skál og hellið volgri mjólk yfir. Látið standa í 15 mínútur. Hveiti, salti, lyftidufti, olíu og jógúrt er svo blandað saman við germjólkina. Hnoðið deigið þar til það verður mjúkt og bætið við hveiti ef ykkur finnst það of lint. Látið deigið hefast í skál í 1 klst. við stofuhita.
Hitið ofninn í 275°C eða stillið grillið á frekar háan hita. Skiptið deiginu í 10 hluta og hnoðið kúlur úr því, fletjið síðan kúlurnar út nokkuð þunnt og þrýstið brauðunum ofan í kryddblönduna sem er blönduð með Maldon-saltinu.
Ef brauðin eru bökuð í ofni eru þau sett á plötu sem er klædd bökunarpappír en ef þau eru grilluð eru þau sett þau á efri grindina á gasgrillinu og bökuð við óbeinan hita í 5-7 mínútur.
Setjið smjör og kardimommur í pott, bræðið smjörið og látið það krauma í 2 mínútur. Veiðið kardimommurnar þá upp úr og setjið hvítlaukinn saman við smjörið (má sleppa ef notað er tilbúið hvítlaukssmjör frá MS). Dreypið smjörinu yfir heit brauðin og klippið ferskt kóríanderlauf yfir allt saman. Berið brauðin strax fram meðan þau eru heit.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð