Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Sumarlegar uppskriftir > Glóandi fiskur með spænsku ívafi

Glóandi fiskur með spænsku ívafi

Handa 4, tveir grillpinnar á mann.

Matreiðsluleiðbeiningar

Aðferð:
Setjið fiskbitana í plastpoka og bætið ólífuolíunni og paprikuduftinu út í. Lokið pokanum og hristið hann svolítið þannig að krydd og olía þeki allan fiskinn. Látið marínerast í 20 mínútur. Búið til sósuna á meðan. Rúllið hálfri beikonsneið um hvern ostbita.
Raðið maríneruðum fiski, papriku og pepperónísneiðum til skiptis á pinnana og setjið tvo ostabeikon-bita á hvern pinna. Penslið pinnana lauslega með afganginum af maríneringunni. Grillið við beinan hita á öllum hliðum í samtals 7-8 mín. Saltið og piprið eftir smekk. Berið strax fram með sítrónubátum, jógúrtsósu með rifinni gúrku og myntu, (sjá uppskrift á bls. 8) og krydd-hrísgrjónum (sjá uppskrift á bls. 12).
Þetta er einfaldur og fljótlegur réttur sem tekur ekki langan tíma að elda. Hægt er að útbúa pinnana og hummusið áður en lagt er af stað að heiman, hvort tveggja geymist í góðri kælikistu í allt að tvo daga. Þá er ekki annað eftir en að skera niður grænmetið, grilla og borða.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Glóandi fiskur

750 g af fiski í 3 cm bitum, t.d. skötuselur, lúða, karfi, heill hörpudiskur og/eða risarækjur. Um 4 bitar á hvern
3 msk. ólífuolía
1 msk. paprikuduft, reykt, venjulegt eða blanda
4 beikonsneiðar, skornar í tvennt
1 steyptur Mexíkóostur frá MS, skorinn í 8 bita
2 rauðar paprikur, skornar í 3-4 cm langa strimla
16 stk. pepperónísneiðar
0 salt og svartur pipar
0 sítróna, skorin í báta

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð