Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Pastaréttir og bökur > Eftirlætisbaka íþróttamannsins

Eftirlætisbaka íþróttamannsins

Enginn sannur íþróttamaður lætur þessa fram hjá sér fara!

Matreiðsluleiðbeiningar

Deig:
Hnoðið deigið saman og kælið í 1 klst.

Fylling:
Skerið púrruna í sneiðar og paprikuna í strimla og látið krauma í smjöri. Bætið sveppunum út í og látið krauma með. Takið af pönnunni og brúnið kjötið ásamt hvítlauk, bergmyntu, pipar og laukdufti. Bætið tómatmauki og púðursykri út í og látið krauma um stund. Setjið grænmetið og sýrðan rjóma út í og sjóðið við vægan hita í u.þ.b. 10 mín. Fletjið 2/3 af deiginu út í kringlótta köku og setjið í smurt lausbotna mót, vel upp með börmum. Pikkið með gaffli og bakið við 225°C í u.þ.b. 10 mín. Takið út úr ofninum og setjið fyllinguna í. Fletjið afganginn af deiginu út í kringlótta köku og pikkið vel. Skerið mynstur ef vill. Penslið hliðar og barma á kökunni með eggjablöndu. Leggið kökuna yfir fyllinguna og þrýstið vel saman á börmum, penslið lokið vel. Bakið við 225°C í 10-15 mín. Gott með grænmeti t.d. papriku og lauk.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

deig

350 g hveiti
250 g smjör
4 msk vatn
 

fylling

1 skm smjör
1 blaðlaukur/ar
1 paprika/ur (gul/ar)
100 g ferskir sveppir
400 g nautahakk
1 ds sýrður rjómi (18%)
3 hvítlauksrif
2 tsk bergmynta (oregano)
1 tsk seasoned pepper
1 tsk laukduft
3 msk tómatmauk (puré)
10 g púðursykur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð