Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Osta- og skyrtertur > Skyrterta með jarðarberjum

Skyrterta með jarðarberjum

Ljúffeng hollustuterta skreytt með jarðarberjum og rjóma.

Matreiðsluleiðbeiningar

Stífþeytið egg og sykur. Sigtið hveiti og lyftiduft og blandið saman við eggjahræruna ásamt kókosmjöli og vatni. Bakið í þremur smurðum hringmótum 24 sm í þvermál við 180-200°C í 10-12 mín.

Fylling:
Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn. Sigtið safann frá jarðarberjunum, geymið. Þeytið rjómann. Blandið sykrinum og jarðarberjunum saman við skyrið. Bræðið matarlímið í vatnsbaði og kælið það með sérríinu og 2 msk af jarðarberjasafa. Hellið matarlíminu saman við skyrblönduna og hrærið vel. Blandið þeyttum rjómanum saman við. Látið skyrblönduna bíða í kæli um stund eða þar til hún byrjar að stífna. Bleytið botnana með jarðarberjasafa og setjið skyrblönduna á milli og ofan á. Skreytið með jarðarberjum og þeyttum rjóma, 3-4 dl rjómi. Látið kökuna bíða í 8-10 tíma í kæli.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

botnar

5 egg
170 g sykur
110 g hveiti
70 g kókósmjöl
2 tsk lyftiduft
2 msk vatn
 

fylling

200 g jarðarberjaskyr
4 dl rjómi
50 g sykur
6 bl matarlím
1 ds jarðarber
2 msk sérrí

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð