Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Kökur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kökur > Sumarterta

Sumarterta

Afar smekkleg og falleg terta, tilvalin í veisluna.

Matreiðsluleiðbeiningar

Hrærið vel smjör, sykur og egg. Blandið þurrefnum og appelsínusafa út í. Bakið í lausbotna móti (klemmumóti, 24-26 sm í þvermál) í 10-12 mín. við 200°C á neðstu rim.

Fylling:
Blandið saman sýrðum rjóma, eggjum og sykri (ekki þeyta). Takið kökuna út úr ofninum og hellið fyllingunni varlega yfir. Skerið jarðarberin til helminga og leggið ofan á fyllinguna. Bakið áfram í u.þ.b. 30 mínútur. Þeytið rjómann og skreytið kökuna eða berið hann fram með. Ef vill má strá flórsykri yfir kökuna.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

botn

150 g smjör
130 g sykur
1 egg
1 appelsína
80 g hveiti
70 g kartöflumjöl
1,5 tsk lyftiduft
 

fylling

1 ds sýrður rjómi (18%)
3 egg
85 g sykur
100 g fersk jarðarber
2,5 dl rjómi

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð