Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Kökur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kökur > Súkkulaðiterta til hátíðabrigða

Súkkulaðiterta til hátíðabrigða

Skreytt með þeyttum rjóma, hindberjum og valhnetukjörnum. Látið kökuna bíða í 2-3 tíma þar til hún er borin fram sem eftirréttur eða á kaffiborð.

Matreiðsluleiðbeiningar

Malið hnetur í kvörn. Þeytið eggjahvítur í 1 mín., bætið helmingnum af sykrinum saman við og þeytið í 3 mín. Bætið því sem eftir er af sykrinum saman við og þeytið í 3 mín. Blandið hnetunum varlega saman við með sleif. Skiptið deiginu í 3 hringlaga mót með lausum botnum (u.þ.b. 24 sm í þvermál). Klæðið botnana á mótunum með bökunarpappír og smyrjið hliðarnar. Bakið við 150°C í u.þ.b. 30 mín.

Krem:
Blandið saman rjóma, sírópi, kakói og bragðefni (má nota líkjör, t.d. Grand Marnier, í staðinn fyrir appelsínuþykkni). Þeytið rjómablönduna í hrærivél eða með rafmagnsþeytara á meðalhraða þar til kremið verður hæfilega þykkt. Breiðið lag af kremi á milli botnanna og utan á tertuna.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

3 botnar

75 g heslihnetur
40 g valhnetukjarnar
5 eggjahvíta/ur
255 g sykur
 

krem

4 dl rjómi
110 g síróp
4 msk kakó
1 msk appelsínuþykkni

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð