Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Kökur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kökur > Súkkulaðikókóskaka

Súkkulaðikókóskaka

Góð með þeyttum rjóma og hægt að frysta hana.

Matreiðsluleiðbeiningar

Blandið þurrefnunum í skál. Bætið mjólk, eggjum og mjúku smjöri út í og hrærið vel í 2-3 mín. Bakið í vel smurðu hringlaga móti með lausum botni, u.þ.b. 28 sm í þvermál, við 170°C í 30-40 mín. Kælið.

Krem:
Stífþeytið egg og flórsykur. Hrærið mjúkt smjörið smátt og smátt saman við ásamt olíunni. Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði, kælið og blandið saman við eggjahræruna ásamt vanillu. Smyrjið kreminu utan á kökuna.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

botn

300 g hveiti
3 msk kakó
1,5 tsk matarsódi
250 g sykur
2 tsk vanilla
150 g smjör
3 dl mjólk
3 egg
1 tsk salt
70 g kókósmjöl
 

krem

2 egg
30 g flórsykur
100 g smjör
1 msk jurtaolía
100 g súkkulaði
2 tsk vanilla

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð