Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Kökur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kökur > Stórgóð möndluterta

Stórgóð möndluterta

Tertan er borin fram með léttþeyttum rjóma. Algjört möndluæði.

Matreiðsluleiðbeiningar

Hrærið smjör og sykur saman og bætið eggjunum í, einu í senn. Blandið möluðum möndlum, hveiti og lyftidufti saman við ásamt vatni. Bakið í smurðu lausbotna formi (28-30 sm í þvermál eða tveimur tertumótum) við 170°C í u.þ.b. 20-30 mín. á neðstu rim í ofni.

Krem:
Blandið eggjarauðum, mjólk, rjóma og kartöflumjöli saman í pott með góðum botni. Hitið og hrærið vel í á meðan, þar til þetta verður þykkt krem. Sjóðið ekki. Takið af hitanum, brjótið súkkulaðið út í pottinn og látið það bráðna saman við. Hrærið af og til og bætið vanillusykrinum út í. Þegar kremið hefur kólnað að stofuhita hrærið þá stofuheitu smjöri saman við með rafmagnsþeytara eða öðrum góðum þeytara. Skerið kökuna í tvo botna, berið stappaða banana (eða apríkósumarmelaði) á neðri botninn og súkkulaðikrem ofan á. Leggið kökuna saman og smyrjið kremi ofan á og á hliðar. Látið kökuna bíða í kæli í 4-6 tíma.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

botn

200 g smjör
255 g sykur
3 egg
200 g möndlur
110 g hveiti
0,5 tsk lyftiduft
0,75 dl vatn (volgt)
 

krem

3 eggjarauða/ur
3 dl mjólk
0,5 dl rjómi
8,5 msk kartöflumjöl
25 g sykur
3 tsk vanillusykur
200 g suðusúkkulaði
75 g smjör
1,5 banani/ar

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð