Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Kökur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kökur > Skógarberjakaka

Skógarberjakaka

Berið kökuna fram með léttþeyttum rjóma og berjum sem ábætisrétt eða á kaffiborð.

Matreiðsluleiðbeiningar

Þeytið eggjahvítur í stífa froðu. Blandið sykri, fínmöluðum möndlum og gróft söxuðum hnetum saman við með sleif. Klæðið botninn á mótinu með bökunarpappír, smyrjið bara hliðarnar. Bakið í lausbotna móti 30 sm í þvermál við 180-190°C í u.þ.b. 20 mín.

 

Krem:

Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn. Þeytið eggjarauður og sykur og þeytið rjómann. Bræðið súkkulaði í vatnsbaði og látið rjúka. Hellið vatninu af matarlíminu og bræðið það í vatnsbaði. Blandið koníakinu saman við eggjahræruna með sleif og hellið matarlíminu því næst út í, hrærið vel (ekki í hrærivél). Blandið að síðustu rjómanum saman við.

 

Losið pappírinn undan kökubotninum og setjið botninn á tertudisk, notið hringinn af kökumótinu og smellið utan um kökuna á tertudisknum. Jafnið kreminu yfir. Frystið kökuna. Látið hana þiðna í 1-2 klst. áður en hún er borin fram.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

botn

5 eggjahvíta/ur
210 g sykur
100 g möndlur (með hýði)
100 g heslihnetur (með hýði)
 

súkkulaðikrem

5 eggjarauða/ur
50 g sykur
80 g suðusúkkulaði
4 bl matarlím
2,5 msk koníak
4 dl rjómi

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð