Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Kökur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kökur > Marsípanterta með rjómafyllingu

Marsípanterta með rjómafyllingu

Sæt og ljúffeng veisluterta

Matreiðsluleiðbeiningar

Stífþeytið egg og sykur og blandið sigtuðu hveiti, lyftidufti og vatni saman við. Notið kantað mót 30 x 40 cm eða búið til bréfmót. Bakið við 170-180°C í miðjum ofni í 10-12 mín. Skerið kökuna út að vild.

Fylling:
Þeytið rjómannm blandið muldum makrónukökum og vanillusykri saman við. Vætið neðsta botninn með 3 msk af ananassafa og dreifið ananasbitum á hann. Setjið helminginn af fyllingunni ofan á, þá annan botn, vætið með 3 msk af jarðarberjasafa. Dreifið jarðarberjunum og afganginum af fyllingunni yfir. Setjið síðasta botninn efst. Smyrjið þunnu rjómalagi utan á kökuna til þess að marsípanið losni síður frá henni.

Marsípan:
Hnoðið möndlumassa, flórsykur og eggjahvítu vel saman. Bætið matarlitnum í og hnoðið vel. Fletjið út á milli arka af bökunarpappír og skerið hæfilegt lag ofan á tertuna og borða á hliðarnar. Skreytið að vild. Best er að setja kökuna saman 6-8 tímum fyrir notkun.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð