Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Kökur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kökur > Lagskipt brúnterta

Lagskipt brúnterta

Draumur í dós. Frábær með þeyttum rjóma.

Matreiðsluleiðbeiningar

Blandið öllu sem á að fara í kökuna saman í skál (smjörið á að vera mjúkt) og hrærið í u.þ.b. 2 mín. í hrærivél. Bakið í pappírsklæddu ferköntuðu móti, 22x32 sm, í u.þ.b. 35 mín. Kælið kökuna og skiptið henni í tvennt eftir endilöngu.

Krem:
Hrærið smjörið vel. Blandið öðru sem á að fara í kremið saman við og hrærið. Leggið kökuna saman með kremi á milli og smyrjið því sem eftir er ofan á og utan með.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

krem

100 g smjör
5 msk kakó
200 g flórsykur
2 tsk vanillusykur
1,5 tsk neskaffi
5 msk vatn (heitt)
 

brúntertudeig

225 g hveiti
400 g sykur
1 tsk salt
1 tsk lyftiduft
1,5 tsk vatn
2 dl súrmjólk
175 g smjör
2 egg
2 tsk vanilla
6 msk kakó

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð