Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Kökur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kökur > Herragarðskaka

Herragarðskaka

Þessa köku má frysta. Tilvalið að fara með hana í bústaðinn og hita hana með álpappír yfir því hún er best volg.

Matreiðsluleiðbeiningar

Hitið mjólkina í 37°C og blandið gerinu saman við. Bræðið smjörið og látið rjúka. Hrærið salti, sykri, eggi og kardimommum saman við vökvann ásamt smjörinu og hluta af hveitinu. Hrærið vel þar til deigið verður seigt. Látið lyfta sér í 30-45 mín. eða um helming.
Hnoðið vel, bætið hveiti í eftir þörfum. Takið 1/3 af deiginu og fletjið út í kringlótta köku og klæðið innan í kökumót u.þ.b. 30 sm í þvermál, vel upp með hliðum. Breiðið eggjakremið yfir. Fletjið afganginn af deiginu út í ferkantaða köku u.þ.b. 65x35 sm. Jafnið marsipankreminu yfir og stráið kanilsykri jafnt þar yfir. Rúllið kökunni upp og skerið í jafna snúða u.þ.b. 2 sm. Raðið þeim ofan á eggjakremið og stráið rúsínum á milli (má sleppa). Þrýstið kantinum í sömu hæð og snúðarnir eru. Látið kökuna lyfta sér í 50-60 mín. Penslið með eggjablöndu og stráið perlusykri yfir. Bakið við 180°C í 35-45 mín. Tilvalið er að baka tvær minni kökur úr deiginu. Setja má glassúr á kökuna.

Eggjakrem:
Blandið saman í pott hveiti, sykri, mjólk og eggjarauðu. Hitið að suðu, hrærið vel í á meðan og látið sjóða í 5 mín. Bragðbætið með vanillusykri og salti. Kælið.

Marsípanfylling:
Hrærið allt vel saman.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

herragarðskaka

3 dl mjólk
3 tsk þurrger
80 g smjör
1 egg
85 g sykur
1,5 tsk kardimommur
0,5 tsk salt
400 g hveiti
 

eggjakrem

25 g hveiti
25 g sykur
2 dl mjólk
1 eggjarauða/ur
1 tsk vanillusykur
0,125 tsk salt
 

marsipanfylling

200 g möndlumassi
2 eggjahvíta/ur
15 g sykur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð