Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Kökur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kökur > Freisting Benediktu

Freisting Benediktu

Þessi kann að kitla bragðlaukana og er svo sannarlega freistandi.

Matreiðsluleiðbeiningar

Stífþeytið egg og sykur. Blandið söxuðu súkkulaði, fínmöluðum möndlum og lyftidufti saman við hveitið og því síðan saman við eggjahæruna ásamt vanillu. Bakið í smurðu, stóru, lausbotna tertumóti (28-30 sm í þvermál) við 175°C í 30-40 mín. Kakan á að vera frekar blaut.

Krem:
Þeytið rjómann. Þeytið vel eggjarauðu og sykur. Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði og hrærið því vel saman við. Blandið að síðustu rjómanum útí. Kælið.

Fylling:
Blandið saman sérrí og vatni og vætið kökubotninn með því. Hreinsið jarðarberin og sneiðið þau. Dreifið þeim yfir og síðan súkkulaðikreminu. Léttþeytið rjómann og setjið yfir. Skreytið með jarðarberjum eða súkkulaði. Látið kökuna bíða í u.þ.b. 1/2 sólarhring.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

deig

5 egg
170 g sykur
200 g möndlur
100 g súkkulaði
40 g hveiti
2 tsk lyftiduft
1 tsk vanilludropar
 

súkkulaðikrem

1 eggjarauða/ur
10 g flórsykur
100 g suðusúkkulaði
2,5 dl rjómi
 

fylling

250 g fersk jarðarber
2 msk sérrí
2 msk vatn
2,5 dl rjómi

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð