Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Kökur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kökur > Blæjuterta

Blæjuterta

Blæjuber koma upprunalega frá Brasilíu og hér setja þau mikinn svip á þessa ljúffengu tertu. Hana má frysta án skreytinga og rjóma.

Matreiðsluleiðbeiningar

Þeytið egg og sykur í stífa froðu. Blandið þurrefnunum samn við með sleif ásamt vaniljudropunum. Bakið í lausbotna mótum, 30 sm í þvermál, 180°C í 10-15 mín.

Krembúðingur:
Leggið matarlím í bleyti í kalt vatn. Þeytið rjómann. Hrærið saman skyri, sykri sítrónusafa og ½ dl af ananassafa. Skerið ananasinn í bita, skiljið eftir 2-3 sneiðar til að skreyta með. Hellið vatninu af matarlíminu og bræðið það í vatnsbaði. Kælið og þynnið matarlímið með ½ dl af ananassafa. Blandið matarlíminu saman við skyrið og hrærið vel í á meðan. Blandið ananasbitum og rjóma saman við. Vætið neðri botninn með ananassafa. Jafnið helmingnum af skyrblöndunni yfir, vætið með ananassafa og jafnið því sem eftir er af búðingnum yfir. Látið tertuna bíða í kæli í 8-12 tíma. Skreytið með ferskum ananas og blæjuberjum. Einnig má skreyta með þeyttum rjóma utan á hringinn áður en hún er borin fram.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

botnar

5 egg
210 g sykur
165 g hveiti
0,5 tsk lyftiduft
2 tsk vanilla
 

krembúðingur

5 dl rjómi
6 bl matarlím
2,5 dl rjómaskyr
50 g sykur
1 dl ananassafi (úr fernu)
1 ananasávöxur/ir
2 tsk sítrónusafi
1 skm ananassafi

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð