Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Kökur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kökur > Bláberjabananarúlla

Bláberjabananarúlla

Þessi rúllar þér alveg upp. Hana má skreyta með rjóma og súkkulaði, og þá verður hún líka sætari.

Matreiðsluleiðbeiningar

Þeytið saman egg og sykur í stífa froðu. Sigtið þurrefnin saman við eggjahræruna. Búið til bréfskúffu 35x25 sm og bakið kökuna við 200°C í miðjum ofni í 10-12 mín. Hvolfið kökunni á sykurstráðan pappír.

Fylling:

Léttþeytið rjómann og bætið sykrinum saman við. Sneiðið bananann og blandið saman við rjómann ásamt bláberjunum. Jafnið rjómafyllingunni yfir kalda kökuna og rúllið henni upp frá lengri hliðinni. Látið samskeytin snúa niður.

 

Skreyta má kökuna með rjóma og súkkulaði.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

bláberjabananarúlla

3 egg
130 g sykur
50 g kartöflumjöl
2 msk kakó
1 tsk lyftiduft
 

fylling

2,5 dl rjómi
15 g sykur
150 g bláber
1 banani/ar

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð