Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Kökur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kökur > Ávaxtakaka

Ávaxtakaka

Þessi kaka geymist vel og má hita upp í álpappír þegar hún er borin fram. Berið sýrðan rjóma 36% með.

Matreiðsluleiðbeiningar

Saxið döðlur og skiptið kokkteilberjunum í tvennt. Blandið þeim saman við saxaða appelsínubörkinn og saxaða súkkatið og hellið koníakinu yfir. Látið bíða á meðan deigið er hrært. Hrærið vel saman smjör og sykur, bætið eggjum út í smám saman og hrærið vel. Setjið hluta af hveitinu yfir ávextina (má nota gráfíkjur í staðinn fyrir döðlur) og veltið þeim upp úr því. Bætið ávaxtablöndunni og söxuðum möndlunum (má nota hnetur) saman við smjörhræruna og síðast lyftiduftinu og hveitinu. Bakið í hringlaga 2ja lítra formi á neðstu rim í ofni við 160°C í u.þ.b 75 mín. Hafið bökunarpappír yfir kökunni nema síðustu 15 mín.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

ávaxtakaka

200 g smjör
210 g sykur
4 egg
125 g döðlur
10 stk rauð kokkteilber
100 g möndlur
1 dl sultaður appelsínubörkur
0,5 dl súkkat
3 msk koníak
200 g hveiti
0,5 tsk lyftiduft

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð