Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Vinsælu kjötbollurnar

Vinsælu kjötbollurnar

Þessar standa ávallt fyrir sínu með rauðkáli, grænum baunum og soðnum eða brúnuðum kartöflum.

Matreiðsluleiðbeiningar

Blandið saman kjöti, lauk og mjöli. Hrærið eggjunum út í smám saman og hrærið vel á milli. Blandið vatninu saman við, litlu í einu, og hrærið vel á milli. Bætið kryddi og kjötkrafti saman við. Geymið kjötfarsið í 1-2 klst. Mótið litlar, jafnar bollur með skeið og steikið jafnbrúnar í smjöri. Látið bollurnar í pott með u.þ.b. 8 dl af vatni og 1 tsk svínakjötskrafti. Sjóðið í 5-10 mín.

Sósa:
Blandið sýrða rjómanum út í heitt soðið. Setjið ananaskurl og safa út í ásamt kryddi, sykri og kjötkrafti. Jafnið með hveitijafningi og sjóðið í 5-10 mín.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

kjötbollur

250 g nautahakk
250 g svínahakk
1 laukur/ar (meðalstór/ir)
2 msk haframjöl
25 g hveiti
2 egg
2 tsk kjötkraftur
1 tsk salt
0,5 tsk svartur pipar
0,5 tsk allrahanda
0,5 tsk negull
0,5 tsk engifer
1,5 dl vatn (kalt)
1 tsk svínakjötskraftur
 

sósa með kjötbollum

8 dl soð af kjötbollum
1 ds sýrður rjómi (36%)
200 g ananaskurl
1 tsk kjötkraftur
2 tsk soja
10 g sykur
0,5 tsk svartur pipar
1 tsk salt
1 tsk laukduft
0,5 tsk allrahanda
1 dl vatn (kalt)
35 g hveiti
1 skm sósulitur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð