Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Svínagrillsteik

Svínagrillsteik

Girnilegur veislumatur með soðnum hrísgrjónum, papriku, ananas, grófu brauði, appelsínusósu og hrásalati ef óskað er.

Matreiðsluleiðbeiningar

Blandið þurra kryddinu saman og myljið grófa kryddið. Geymið 1 tsk af kryddblöndu í sósuna. Nuddið sinnepinu utan á kjötið og stráið kryddinu yfir, látið bíða í 1-2 klst. Hitið ofninn í 250°C með grillið í yfirhita. Steikið í 10 mín. á hvorri hlið í miðjum ofni. Lækkið hitann í 160°C, færið kjötið neðst í ofninn og steikið áfram í u.þ.b. 50 mín. Steikja má kjötið á útigrilli en gætið þess að snúa oft. Grillið sneiðarnar í u.þ.b. 10 mín á hvorri hlið en steikið þær ekki áfram í ofninum.

Sósa:
Hitið vatn og svínakjötskraft saman í potti, bætið sýrða rjómanum við og hrærið vel í. Blandið kryddi, tómatsósu og appelsínuþykkni saman við. Hristið hveitijafning og jafnið út í sjóðandi vökvann. Látið sósuna sjóða við vægan hita í 5-7 mín. Bætið kryddi við ef þarf.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Svínagrillsteik

1 kg svínahnakki (beinlaus eða sneiðar með beinum)
1 tsk mejram
1 tsk basil
0,5 tsk laukduft
0,5 tsk hvítlaukssalt
0,25 tsk karrí
0,5 tsk svartur pipar
0,75 tsk salt
0,25 tsk paprikuduft
2 tsk sinnep (ósætt)
 

appelsínusósa

3 dl vatn
2 tsk svínakjötskraftur
1 ds sýrður rjómi (36%)
0,5 dl vatn (kalt)
20 g hveiti
1 tsk kryddblanda
5 g sykur
0,6 msk tómatsósa
1,5 msk floridana appelsínuþykkni

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð