Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Svínabógur með osta og fíkju

Svínabógur með osta og fíkju

Matreiðsluleiðbeiningar

Búið til fyllinguna. Skerið stöngulendan af fikjunum, saxið þær smátt og setjið í skál. Rífið ostinn yfir fíkjurnar. Rífið eplið yfir með berki. Bætið brauðmylsnunni út í, þá appelsínuhýði salti og pipar. Bætið egginu að síðustu í. Skerið raufar í hamin á kjötinu. Leggið bóginn á borð með hamin niður. Skerið kjötið laust frá hamnum en látið hanga fast saman á þremur hliðum. Setjið fyllinguna á milli kjöts og hams, breyðið úr henni eins og hægt er. Eða setjið fyllinguna ofan á kjötið. Rúllið kjötinu upp og vefjið. Hitið ofninn í 200 «C. Vigtið rúllina og áætlið 45 mín í steikingu á hvert 1/2 kg. Leggið rúlluna í eldfast mót eða litla ofnskúffu sem er rétt aðeins stærri en rúllan, með hamin niður. Hellið cider og appelsínusafa í skúffuna og bætið örlitlu vatni í, þannig að vökvinn verði 1 1/2-2 sm. Steikið í 30 mín. Takið skúffuna út úr ofninum. Snúið rúllunni við og stráið 1 1/2 tsk af salti yfir. má stinga negul- nöglum í ef vill. Steikið áfram í 1/2 klst.. þar til puran er orðin stökk. Bætið meiri vökva í skúffuna ef þarf. Lækkið hitann í 175«C og steikið áfram út steikingar- tíomann. Færið rúlluna upp og leggið álþynnu yfir. Hellið vökvanum úr skúffunni í pott og sjóðið lítið eitt niður. Hægt er að þykkja sósuna ef vill en er ekki nauðsynlegt. Fjarlægið bandið af kjötinu og skerið það í sneiðar. Berið fram með smjörgljáðum kartöflum og rauðkáli. Smjörgljáðar kartöflur: Sjóðið kartöflurnar og afhýðið. Látið þær krauma í bræddu smjöri smástund án þess að brúnast. Setjið þær í skál og stráið steinselju yfir.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Svínabógur m/osta og fíkju

2 kg svínabógur kg
2,5 dl cider dl
78 ml appelsínusafi
0 g fylling:
175 g gráfíkjur þurrkaðar
125 g maribó ostur
1 stk epli
120 g brauðmylsna
65 g appelsínuhýði rifið
0,5 tsk salt
0,25 tsk pipar
1 stk egg

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð