Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Rjúpur með mynturjómasósu

Rjúpur með mynturjómasósu

Sannkallaður veislumatur, tilvalinn á jólaborðið.

Matreiðsluleiðbeiningar

Hreinsið rjúpurnar og leggið í mjólkurbland í 6-8 tíma. Hreinsið innyflin og brúnið í smjöri ásamt rjúpunum. Stráið salti, pipar og villijurtakryddi yfir fuglinn, á hvora hlið, þegar búið er að brúna. Látið í pott. Sjóðið upp af pönnunni og hellið yfir fuglinn. Bætið við vatni þannig að soðið verði 1-11/2 lítri. Saltið í pottinn ef með þarf. Sjóðið í 40-50 mín.

Sósa:
Saxið lauk og sellerí frekar smátt og látið krauma í smjöri. Bætið síðan soði og villijurtakryddi út í og látið sjóða í 5 mín. Látið rjómann út í og jafnið með hveitijafningi. Setjið myntuhlaupið saman við og sjóðið við vægan hita í 5-7 mín. Kryddið ef þarf og litið með sósulit.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

sósa

1 laukur/ar
3,5 stilkur/ar sellerí
15 g smjör
3 tsk villijurtakrydd
0,9 l soð
2 dl rjómi
1 dl vatn
3,5 g hveiti
1 skm salt og svartur pipar
1,5 msk myntuhlaup eða annað berjahlaup
1 skm sósulitur
 

rjúpur

6 rjúpa/ur
2,5 tsk villijurtakrydd
1 tsk salt
0,5 tsk svartur pipar

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð