Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Ofnbakaður kjúklingaréttur

Ofnbakaður kjúklingaréttur

Matreiðsluleiðbeiningar

Hitið ofninn í 190°C. Skiptið kjúklingnum í 8 hluta. Steikið kjúklingahlutana í 2 msk af olíu og helmingnum af smjörinu. Skinnhliðina fyrst í 10 mín., og snúa þá við og steikja í 10 mín. Setjið kjúklingahlutana í eldfast mót. Stráið salti og pipar yfir. Hreinsið og skerið sellerírótina í litla bita og sjóðið í saltvatni í 8 mín. Látið leka vel af bitunum og setjið yfir kjúklingahlutana. Látið blaðlauk og sellerí krauma í því sem eftir er af olíu og smjöri í 4-5 mín. setjið yfir sellerírótina. Takið mestu fituna af pönnunni og sjóðið upp af henni með hvítvíninu. Látið sjóða í 2-3 mín., skafið upp af botninum. Dragið pönnuna af hitanum og bætið við rjóma, sinnepi, engiferi, múskati, cayennepipar og helmingnum af ostinum. Blandið saman og hellið yfir réttinn. Stráið brauðmylsnunni yfir og síðan því sem eftir er af ostinum. Bakið í lokuðu íláti í 20 mín., takið lokið af og bakið áfram í 20-25 mín.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Ofnbakaður kjúklingaréttur

3 msk olía
25 g smjör
1 stk kjúklingar stór
2 stk kjúklingabringur
1 tsk salt
1 tsk pipar malaður
1 stk sellerírót lítil
2 stk blaðlaukur sneiddur
2 stk sellerístilkar bitar
1,3 bolli hvítvín
0,8 bolli rjómi
2 msk dijon sinnep
1,5 msk engifer rifið
0,1 tsk múskat nýrifið
0,1 tsk cayennepipar
175 g ostur 26 % rifinn
3 msk brauðmylsna

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð