Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Mexíkanskur pottréttur

Mexíkanskur pottréttur

Matreiðsluleiðbeiningar

Veltið kjötinu upp úr paprikuduftinu. Skerið beikonið í strimla og steikið (ekki harðsteikja). Setjið tómata og safan úr dósinni í blandara. Hitið ofninn í 175°C. Hitið olíu og smjör í eldföstum potti. Brúnið kjötið. Lækkið hitan og bætið beikoni, lauk og hvítlauk út í. Látið brúnast vel. Stráið hveitinu yfir og hrærið vel í. Hellið tómatmaukinu út í, í gegnum sigti, þrýstið vel á tómatmaukið í sigtinu. Bætið soði, rauðvíni og tómatpurre saman við. Látið suðuna koma upp. Kryddið með salti, pipar og sykri. Bætið grænmetisbúnti út í ásamt steinselju. Setjið lok á pottinn og setjið í ofninn í 50 mínútur. Lækkið hitan í 160°C. Bætið rjómaostinum út í og látið hann bráðna. Setjið sveppina saman við og setjið aftur í ofninn í 20 mínútur. Kælið. Setjið í plastílát með loki og setjið í frost. Látið þyðna í kæliskáp í 12 klst. Hitið ofninn í 175°C. Og hitið réttinn í 40-50 mínútur. Berið fram með hrísgrjónum.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Mexíkanskur pottréttur

750 g lambakjöt í bitum
2 tsk paprikuduft
4 sn beikon sn
1 dós tómatar niðursoðnir
1 msk olía
30 g smjör
2 stk laukur sneiddur
1 stk hvítlauksgeirar pressaðir
1 msk hveiti
1 msk tómatpure
2 dl rauðvín dl
1,5 dl soð dl
0,5 tsk salt
0,5 tsk pipar
0,5 tsk sykur
1 stk grænmetisbúnt bouquet garni
100 g sveppir skornir í fernt
100 g rjómaostur hreinn
1 msk steinselja

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð