Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Maribókjúklingur

Maribókjúklingur

Matreiðsluleiðbeiningar

Skerið ostinn í 8 jafnstóra stangir. Skerið kjúklingabringurnar í tvennt og fletjið þær út með buffhamri ( ekki merja kjötið ). Vefjið bringunum utan um ostastangirnar og festið með tannstönglum. Sláið eggin sundur. Veltið kjúklingarúllunum upp úr eggjunum og þá úr brauðmylsnunni. Brúnið í smjörinu. Takið af pönnunni. Látið lauk og papriku krauma í 50 g af smjöri þar til mjúkt, bætið hveiti og kryddi út í og hrærið vel í. Blandið vatninu saman við, látið sjóða og hrærið í þar til þykknar. Hrærið hrísgrjónunum saman við, og setjið í eldfast mót. Raðið kjúklingarúllunum ofan á. Bakið í 20 mín., við 200°C. Látið sveppina krauma í smjöri í nokkrar mín, hrærið hveitinu saman við. Leysið teninginn upp í vatninu og hrærið saman við sveppablönduna. Bætið mjólkinni saman við, látið sjóða og hrærið í allan tímann eða þar til þykknar. Bætið víninu í, hitið. Smakkið til með salti og pipar. Hellið sósunni yfir kjúklingarúllurnar eða berið hana fram með.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Maribókjúklingur

300 g maribó ostur
1250 g kjúklingabringur
2 stk egg
0,8 bolli brauðmylsna ókrydduð
100 g smjör
1 stk laukur saxaður
1 stk paprika söxuð
2 msk hveiti
1 tsk salt
0,25 tsk pipar
0,8 bolli vatn kalt
2 bolli hrísgrjón soðin
1 bolli villihrísgrjón soðin
100 g sveppir sneiddir
50 g smjör
3 msk hveiti
1 stk kjúklingateningur
0,5 bolli vatn heitt
0,5 bolli mjólk
0,3 bolli hvítvín
1 tsk salt
0,25 tsk pipar

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð