Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Lifrapaté með rjómasveppasósu

Lifrapaté með rjómasveppasósu

Gott volgt eða kalt með sýrðum smágúrkum, rúgbrauði, hrásalati og heitri rjómasveppasósu.

Matreiðsluleiðbeiningar

Hakkið lifur, beikon og lauk 2 sinnum eða setjið í blandara (frekar fíngert). Hrærið egg, krydd, mjöl, rjóma og mjólk vel saman. Blandið söxuðum ólívum varlega saman við. Kælið deigið í 30 mín. og bakið í smurðu móti, 1,5-2 l., við 175°C í u.þ.b. 1 klst. Ef settur er pappír yfir mótið verður skorpan minni.

Sósa:
Sneiðið sveppi og látið krauma í smjöri. Hellið vatni og krafti yfir og sjóðið í 5 mín. Bætið rjóma út í og sjóðið við vægan hita í 2-3 mín. Saltið og jafnið með maísenamjöli.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

lifrarpaté

400 g svína- eða lambalifur
400 g svínahakk
100 g beikon
1 laukur/ar (meðalstór/ir)
1 egg
2 dl rjómi
1 dl mjólk
0,5 dl soja
2 tsk kjötkraftur
2 tsk villijurtakrydd
1 tsk blóðberg (timian)
1,5 hvítlauksrif
0,5 tsk svartur pipar
1 tsk salt
1 dl haframjöl
30 g hveiti
12 fyllt/ar ólífa/ur
 

rjómasveppasósa

250 g ferskir sveppir
25 g smjör
3 dl vatn
1,5 tsk kjötkraftur
2,5 dl rjómi
0,5 tsk salt
1 skm maísenamjöl

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð