Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Lasagne

Lasagne

Sígilt frá Ítalíu, borið fram með hrásalati og brauði.

Matreiðsluleiðbeiningar

Skerið lauk og sveppi í sneiðar og brúnið á pönnu. Brúnið hakkið og bætið mörðum hvítlauk saman við og tómatsósu. Blandið óreganó, kjötkrafti, salti og pipar út í ásamt vatni, lauknum og sveppunum og látið krauma í 5 mín. Bætið niðursoðnu tómötunum út í og sjóðið áfram í 5-10 mín. við vægan hita. Blandið mjólkinni út í hakkblönduna og jafnið hakkið með hveitijafningi (1 dl vatn + 4 msk hveiti) þegar sýður. Bragðbætið eftir þörfum, látið sjóða í 2-3 mín. Ef ekki eru notaðar ferskar lasagne plötur þarf að leggja þær í bleyti í kalt vatn í 10-15 mín. (ekki of þétt saman).
Smyrjið eldfast mót og veiðið sósu af hakkblöndunni og setjið í botn á mótinu, raðið lasagneplötum yfir. Dreifið hakkblöndu yfir u.þ.b. helming (en ath. að eiga sósu eftir undir ostinn efst) og raðið lasagne plötum þar ofaná. Endurtakið þetta og dreifið sósuafganginum efst ofaná lasagne plöturnar og stráið að síðustu rifnum ostinum yfir (þ.e.a.s. 3 lög lasagne plötur, 2 lög hakk).

Bakið í ofni við 200°C í 30-40 mín. eða þar til rétturinn hefur soðið vel í gegn og osturinn orðinn fallega brúnn.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

lasagne

500 g nautahakk
2 laukur/ar (stór/ir)
150 g ferskir sveppir
2 msk olía
4 hvítlauksrif
3 tsk oregano
3 tsk kjötkraftur
4,5 msk tómatsósa
1,5 tsk salt
0,25 tsk svartur pipar
1 dl vatn
1 ds niðursoðnir tómatar
6 dl mjólk
1 dl vatn (kalt)
35 g hveiti
12 lasagne plötur
50 g parmesanostur
50 g 26% ostur (gouda)

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð