Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Lasagne með papriku og pasta

Lasagne með papriku og pasta

Matreiðsluleiðbeiningar

Sósa: Saxið lauk, gulrót, sellerý og kjöt. Hitið saman olíu og smjör og látið kjöt og grænmeti krauma í feitinni í u.þ.b. 10 mín.. Látið leka af tómötunum og setjið þá í blandara. Setjið vínið út í kjöt og grænmetisblönduna. Látið krauma í 5 mín., bætið tómötunum út í og látið krauma í 20 mín.. Bætið kryddi í og soði, látið krauma undir loki í 45 mín., hrærið í öðru hverju. Bætið rjómanum út í. Látið malla í 20 mín. Takið lokið af þegar 5 mín. eru eftir . Dragið af hitanum og kælið í 1 klst.. Pasta: Útbúið pastað, sjá bls. ., setjið paprikuna í hveitið. Rúllið deiginu út í þynnsta, skerið í ílanga ferhyrninga, u.þ.b. 8x20 sm.. Látið bíða undir klút. Forsjóðið pastað í léttsöltu vatni í 10 sek. eftir að suðann kemur upp. Færið yfir í skál með köldu vatni og olíu. Takið pastað upp og leggið á rakan klút. Hitið ofninn í 190°C. Penslið eldfast mót með 1 msk af smjöri. Leggið pasta í botninn. Setjið þunnt lag af sósu yfir (u.þ.b. 5 msk. ). Stráið parmesanosti yfir. Þá pasta, sósa og parmesanostur. Efsta lagið á að vera sósa , parmesanostur. Skerið smjörið í bita og dreifið yfir parmesanostinn. Dreifið rifna ostinum yfir. Bakið í 35 mín.. Látið bíða í 5 mín. eftir að það er tekið úr ofninum og þar til borið fram. Lasagne á að hafa 12 lög af lasagne, ef ekki þá er það ekki lasagne, að sögn Ítala.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Lasagne með papriku og pasta

0 g sósa:
1 stk rauðlaukur
1 stk gulrætur
1 stk sellerístilkar
90 g skinka
180 g nautakjöt
180 g svínakjöt
60 g smjör
2 msk ólífuolía
500 g tómatar
0,5 bolli hvítvín
0,5 tsk salt
0,25 tsk pipar
0,25 tsk múskat nýrifið
0,75 bolli kjötsoð
0,75 bolli rjómi
0 g pasta:
4 bolli hveiti
5 stk egg
2 tsk paprikuduft
0,5 tsk salt
60 g smjör
150 g ostur 26 % rifinn
0,7 bolli parmesan ostur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð