Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Lambafille með Bordelaise sósu

Lambafille með Bordelaise sósu

Matreiðsluleiðbeiningar

Bræðið smjörið í víðum potti, bætið lauk, gulrót, blaðlauk, og selleríi við og sjóðið þar til vel meyrt en ekki láta það brúnast. Hrærið hveiti og tómatkrafti saman við. Bætið við tómötum, hvítlauk, hvítvíni, soði og grænmetisbúnti. Kryddið með salti og pipar. Látið malla undir loki í 30 mín. Látið í sigti og þrýstið á til að ná öllum vökva úr. Setjið soðið til hliðar en hendið grænmetinu úr sigtinu. Bræðið smjörið fyrir sósuna. Bætið karlottulauknum út í og látið krauma þar til meyr en ekki láta hann brúnast. Bætið víni, piparkornum og tímíani út í og látið malla þar til nánast allur vökvi er búinn. Bætið sósugrunninum út í og látið sjóða niður um 1/3. Sigtið. Haldið sósunni heitri. Skerið í fituna á kjötinu og stráið kryddi yfir. Raðið kjötinu á grind yfir ofnskúffu og glóðið í ofni í u.þ.b. 8-10 mín., slökkvið á glóðinni og lokið ofninum og látið kjötið standa í ofninum í um 10 mín. Berið fram með nýsoðnum kartöflum og gljáðu grænmeti. Sjá gljáð grænmeti bls. 103 í Ostalyst 2.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Lambafille með Bordelaise sósu

1800 g lambafille
1 tsk salt
0,5 tsk pipar malaður
0 g sósugrunnur:
30 g smjör
1 stk laukur saxaður
1 stk gulrætur söxuð
1 stk blaðlaukur saxaður
2 stk sellerístilkar saxaðir
1 msk hveiti
1 msk tómatkraftur
3 stk tómatar skornir í fernt
1 stk hvítlauksgeirar pressaðir
1 bolli hvítvín
1 bolli kjötsoð
1 stk grænmetisbúnt
0,25 tsk salt
0,25 tsk pipar malaður
0 g sósa:
30 g smjör
2 stk karlottulaukur saxaður
10 stk piparkorn steytt
0,5 bolli rauðvín
0,5 tsk timian
2 bolli sósugrunnur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð