Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Læri með piparsósu

Læri með piparsósu

Berið bakaðar kartöflur, soðnar kartöflur eða kartöflubakstur og soðið eða hrátt grænmeti með kjötinu, ásamt piparsósu.

Matreiðsluleiðbeiningar

Hreinsið kjötið og nuddið með hvítlauk. Blandið saman olíu, rósmarín og timjan og penslið kjötið. Geymið í kæli í 4-6 klst. Látið kjötið á grind ofan á ofnskúffu og stráið 1-2 tsk af salti yfir kjötið. Steikið kjötið í ofni við 160°C í 11/2-2 klst. Hellið 1/2 l af heitu vatni í ofnskúffuna síðustu 30 mín. af steikingartímanum. Ef skorpan er ekki nægileg má setja ofninn á grill síðustu 3-5 mín.

Sósa:
Látið saxaðan laukinn krauma í smjörinu, bætið muldum grænum pipar út í og látið krauma með í 1 mín. Hrærið hveitinu saman við laukblönduna og bakið upp með blöndu af soði og vatni (7dl). Fleytið fitu ofan af soðinu ef þarf. Blandið sinnepi, rifsberjahlaupi og sýrðum rjóma saman við og litið sósuna með sósulit. Sjóðið sósuna við vægan hita í 5-7 mín.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

læri

2 hvítlauksrif
3 msk olía
3 tsk rósmarín
3 tsk blóðberg (timian)
 

sósa

15 g smjör
0,5 laukur/ar
1,5 msk þurrkaður grænn pipar
25 g hveiti
1 tsk dijon sinnep
7 dl soð og vatn
0,5 msk rifshlaup
0,5 ds sýrður rjómi (36%)

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð