Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Kryddaður kjötréttur

Kryddaður kjötréttur

Matreiðsluleiðbeiningar

Skerið kjötið í bita. Saxið chilipiparinn smátt (gætið þess að hafa hanska og fara ekki nálægt andlitinu með hendurnar). Blandið saman kryddi, hvítlauk, chilipipar og jógúrt. Blandið kjötinu saman við. Látið standa í 1 klst. Látið laukinn krauma í smjörinu þar til hann fer að brúnast. Takið laukinn upp og bætið kjötinu á pönnuna, látið krauma í u.þ.b. 5 mín, snúið kjötinu oft þannig að það festist ekki við pönnuna. Setjið laukinn yfir kjötið og stráið salti yfir. Setjið vatn á pönnuna þannig að rétt fljóti yfir kjötið. Látið krauma undir loki í 40-45 mínútur. Brúnið möndlurnar í smjörinu sem eftir er, blandið rúsínunum saman við, látið krauma í nokkrar mín. Kælið kjöt og rúsínu-möndlublönduna og frystið sitt í hvoru lagi. Látið kjöt og möndlu-rúsínublönduna standa í kælir yfir nótt. Hitið saffran í mjólkinni. Sjóðið hrísgrjónin. Hitið kjötið örlítið. Setjið hrísgrjón og kjöt lagskipt í eldfast mót, hafið hrísgrjón efst. Hellið mjólkinni yfir. Setjið lok á mótið eða setjið álpappír yfir og hitið við 175°C í 15-20 mínútur. Stráið rúsinum og möndlum yfir.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Kryddaður kjötréttur

500 g lambakjöt td innralæri
2 stk chili pipar grænn
0,5 tsk garam masala
1 tsk cumin ground
1 stk hvítlauksgeirar pressaðir
200 g jógúrt hreint
3 stk laukur sneiddur
75 g smjör
0,5 tsk salt
30 g möndluspænir
50 g rúsínur
250 g hrísgrjón
1 dl mjólkdl
0,2 tsk saffran örlítið

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð