Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Kjötréttir > Kjúklingur vafinn í parmaskinku

Kjúklingur vafinn í parmaskinku

Kjúklingur vafinn í parmaskinku með fetaostafyllingu og rauðvínssósu. Miðað er við eina kjúklingabringu á mann og 1 sneið af parmaskinku fyrir hverja bringu.

Matreiðsluleiðbeiningar

Kjúklingur fylling:

Skerið vasa í kjúklingabringurnar og setjið fyllinguna inn í með teskeið. Vefjið parmaskinkunni utan um og setjið í eldfastmót smurt með olíu. Steikið í ofni við 170° í 30 - 40 mín fer eftir stærð bringnanna  

Rauðvínssósa með sólþurrkuðum tómötum

Saxið laukinn og sveppina fínt og steikið í olíu eða smjöri. Hellið rauðvíni í pottinn og látið það sjóða þar til það er cirka 1/2 líter eftir. Bætið kjúklingasoðinu í og látið aftur sjóða til helmings. Sigtið laukinn og sveppina úr sósunni. Bragðbætið með kjötkrafti. Þeytið smjöri í sósuna og kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar. Bætið sólþurrkuðum tómötunum út í sósuna rétt áður en hún er borin fram

Bakaðir smátómatar með basilíku, hvítlauk og mozzarella

Skerið tómatana og mozzarellakúlurnar í tvennt. Veltið upp úr ólífuolíunni og stráið hvítlauk og basilíkulaufum yfir. Bakið við 170° C í 15. mínútur.

Með þessu er gott að bera fram ferskt klettasalat og ólífur.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Kjúklingur - Fylling

4 msk. ristaðar furuhnetur
4 msk. fetraostur með sólþurrkuðum tómötum
125 g. rjómaostur með svörtum pipar
 

Rauðvínssósa með sólþurrkuðum tómötum

1 stór laukur
100 g. sveppir
1 rauðvínsflaska
50 g. sólþurrkaðir tómatar
4 msk. smjör
0 salt og svartur pipar
0 kjötkraftur til bragðbætis
0 maisenamjöl til þykkingar
 

Bakaðir smátómatar með basilíku, hvítlauk og mozzarella

1 poki ferskur mozzareallostur í litlum kúlum
1 askja smátómatar
2 msk. ólífuolía
2 msk. fersk basilíka
1 msk. hvítlaukur
0 salt og svartur pipar

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð